| Velkomin! |
Gönguhópurinn LOST var stofnaður í febrúar 2007 fyrir hálfgerða tilviljun. Hugmyndin var að ná saman nokkrum samstarfskonum sem hefðu áhuga á að ganga Laugaveginn í ágúst þetta sama ár. Þar sem konurnar eru ekki í meirihluta (enn sem komið er) hjá LS þá breyttist hugmyndin fljótt í að mynda gönguhóp sem gæti smátt og smátt komið sér uppúr rölti um Elliðaárdalinn og yfir í að ganga Leggjabrjót þá um sumarið. Úr varð að hafa hópinn opinn fyrir starfsmenn LAST, fjölskyldur þeirra, kunningja, velunnara og aðra fylgifiska. Markmiðin fyrir næstu ár eru há og mikil. Æfingar fyrir komandi sumarferð skulu hefjast í marsmánuði (vegna birtuskila) og enda í góðri lokaferð í júnímánuði. Stefna skal á göngu á tveggja vikna fresti en enginn einn dagur niðurnelgdur þannig að hægt sé að taka tillit til skapsveiflna veðurguðanna hverju sinni. Reynt verður að halda sig við nágrenni höfuðborgarsvæðisins til æfinga en sumarferð hvers árs getur verið hvar á landinu sem er. Taka skal fram að nafn hópsins er ekki lýsandi fyrir árangur hans. Það einfaldlega rímaði vel við LAST (skammstöfun Landsteina Strengs) og BLAST (skammstöfun starfsmannafélagsins) sem í raun stendur fyrir Bjórfélag Landsteina Strengs. Bestu kveðjur,
|
|
LOST stjórnin | ![]() |