HVENÆR:
Fimmtudaginn 8. maí.
 
KLUKKAN:
Bleiki punkturinn kl. 18:00.
 
GÖNGUTÍMI:
Ca 2-3 klst.
 
FYRIR HVERJA:
Allir eru velkomnir...endilega að draga með maka, vini, ættingja eða nágranna.
 
VIÐBRÖGÐ:
Í síðustu göngu vorum við 2 fullorðin, 1 barn. Það var leiðinleg ganga í hávaða roki, norðan garra og drullusvaði.
Endilega setjið inn gsm-númerið mitt (8935577) eða Julien (8983617) þannig að þið getið látið okkur vita ef þið eruð á leiðinni... kannski bara aðeins sein ?
 
KORT:
 
FRÓÐLEIKUR:
Bærinn Straumur sunnan álversins og Straumsvíkur dregur nafn sitt af ferskvatni sem sprettur fram í fjörunni og í tjörnum í hrauninu. Talið er að vatnið eigi uppruna sinn í Kaldárbotnum og Undirhlíðum. Sjávarfalla gætir í þessum ferskvatnstjörnum, sem eru einstök náttúrufyrirbæri. Svæðið umhverfis Straum kallast Hraun. Þar voru um 12 býli og kot um aldamót 1900. Straumshúsið var byggt 1926 af Bjarna Bjarnasyni skólastjóra Barnaskóla Hafnarfjarðar sem ætlaði að reka þar stórbú. Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins teiknaði húsið. Árið 1948 keypti Hafnarfjarðarbær Straumsbúið og leigði það út til ýmiskonar starfsemi. Á níunda áratug 20. aldar voru Straumshúsin gerð upp og hýsa nú listamiðstöð sem rekin er á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Það er kjörið að rölta með sjónum út að Langakletti, skoða það sem fjaran hefur að geyma og fylgja síðan vegarslóðanum til baka. Einnig er hægt að hefja gönguna við upplýsingaskilti og fylgja stikaðri leið. Þá er farið fyrst yfir tún Lambhúsagerðis og stefnan tekin á Kúaréttina sem er í fallegu jarðfalli vestast í Sigurðarhæð. Leiðin upp úr jarðfallinu er stikuð og þegar upp er komið er gengið eftir hæðarhrygg til norðurs í áttina að Kotaklifsvörðu. Þar eru vegamót fjögurra leiða, Vetrarleiðarinnar suður með sjó, Óttarsstaðastígs sem liggur að Óttarsstaðabæjunum, Skógarstígs sem liggur áleiðis suður í Almenning og Fjárborgarstígs sem liggur að Kristrúnarborg. Þeir sem vilja lengja leiðina er ráðlagt að halda beint til norðurs og fylgja stikaðri slóð í áttina að sjónum. Komið er í stórgrýtta fjöru og er henni fylgt að rammgerðum garði sem umlykur heimatún Óttarsstaða. Farið er neðan garðs með fjörunnu við Langaklett áfram framhjá Arnarkletti og Langabakka og fjörunni fylgt til baka að Straumi. Þeir sem ætla styttri leiðina taka stefnuna frá Kotaklifsvörðu til norðausturs í áttina að Eyðikoti, sumarbústað í burstabæjarstíl. Farið er hægra megin við bústaðinn eftir vegaslóða sem liggur niður að ströndinni og Óttarsstaðavör. Síðan er Sjávargötunni fylgt til baka þar sem hún liggur á bakkanum ofan fjörunnar en neðan Kotamóa, Jónsbúðar, Tjörvagerðis og Þýskubúðar. Síðasta spölinn er farið um Landabyrgistanga að upphafsreit. Hægt er að fá handhægt kort af Hraunum við Straumsvík í Upplýsingamiðstöð Hafnarfjarðar.